Almennir Skilmálar

Almennt

Kaupendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun BodySuit, www.bodysuit.is Um notkun vefsíðu og vefverslunar BodySuit gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun BodySuit samþykkir og viðurkennir kaupandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma. DS Import ehf kt. 600323-1800, er staðsett að Grensásvegi 50, 108 Reykjavík. Símanúmer er 624-7461. BodySuit áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

Verð

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur. BodySuit áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.


Nákvæmni upplýsinga

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

Greiðsluleiðir

Hægt er að greiða vöruna í vefverslun með greiðslukorti, netgíró, pei , inneign eða apple pay.  BodySuit er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.